Færsluflokkur: Bloggar
7.6.2011 | 19:26
Þessi stuðningsfundur við Geir er ákaflega ósmekklegur
... en kannski þarf að líða nokkur tími þar til fólk gerir sér grein fyrir því hve óviðeigandi þetta fundarhald var. Það er eins og fólk búi enn í góðærislandi þar sem einstaklingar þurfi ekki að sæta ábyrgð en treysti þessi í stað á sina ,,stuðningsmenn". Geir Haarde sætir opinberri ákæru og nauðsynlegt að málið hafi sinn gang. Opinberir embættismenn eiga að fá að vinna í friði.
Ég tek annars enga afstöðu til þess hvort þessi ágæti hagfræðingur og stjórnmálamaður er sekur af ákæruatriðum enda málið í ákveðnu lýðræðislegu ferli.
Ekkert annað en hneisa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2011 | 07:32
Gott að draga úr akstri hélt ég
Óttalegir klaufar eruð þið FÍB menn. Talið um að komið sé að þeim þröskuldi að fólk þurfi að draga úr notkun einkabílsins. Það er einmitt mjög æskilegt að flestra mati að við notun bílana minna; Umferðarhávaði, hreyfingarleysi fólks og allskonar vandamál leysast með minni notkun einkabíls.
Hefði nú verði betra fyrir ykkur að tala frekar um vanda tekjulágs fólks sem þarf að keyra langt til vinnu. Á því fólk bitna þessar gríðarlegu hækkanir væntanlega illa.
Ríkið dragi úr álagningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.8.2010 | 19:20
Landgræðslan gegn sínum lággróðri?
Bíðið nú við. Er ekki hlutverk Landgræðslunnar að rækta upp sanda og mela með allskonar lággróðri. Við skógræktarfólk gróðursetjum hinsvegar tré? Það er eitthvað kjánalegt við þessa yfirlýsingu.
Varla þarf að segja þessu góða fólki að sandar og melar geta verið beinlínis hættulegir í hvassviðri. Þessi viðvörum þeirra um lággróður sem æði brátt yfir Markarfljótsaura er beinlínis brosleg. Það er hlutverk Landgræðslunnar að sjá um að örfoka land grói upp. En ok. viljið þið þá ekki útskýra fyrir almenninga hugmyndir ykkar um plöntuval. Hvað eru vondar plöntur og hverjar eru góðar?
Óttast að lúpínan taki völdin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2010 | 20:29
Batnandi flokki er best að lifa...
Nú þarf VG bara að losa sig við Samfylkingu og komast burt úr glapræðsför ríkisstjórnarinnar inn í ESB. Taka þessvegna upp samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Vilja draga umsókn til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.6.2010 | 16:12
Ég var lengi á átta mig á síðustu setningunni...
1001 nótt ekki of dónaleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2010 | 22:19
Gefðu þig fram Sigurður
Það er grafalvarlegt mál að vera eftirlýstur af Interpol. Stórhættulegt raunar á tímum hryðjuverka og alþjóðlegra glæpa. Leit og handtökur eftirlýstra eru enginn barnaleikur.
Ég ráðlegg í fullri einlægni Sigurði Einarssyni eindregið að gefa sig fram hið fyrsta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2010 | 09:49
Hættan af Kötlu
Ég verð að segja eins og er að gleðin í kringum eldgosið á Fimmvörðuhálsi er farin að minna mig á góðærið kennt við 2007. Nema að bakslagið gæti orðið miklu hræðilegra.
Ábyrgðarleysið og kjánaskapurinn í umgengni við eldstöðina Kötlu (sem er undir Mýrdalsjökli) er sláandi. Gæti endað hræðilega, miklu verr en nokkkur Icesaveskuld.
Hvernig væri að vísir menn (les jarðfræðingar) rituðu eða blogguðu af meiri krafti um eftirfarandi:
1. Katla er ein hættulegasta eldstöð landsins. Sérstaklega vegna þess hve hamfaraflóð fer hratt af stað (það fer yfir þjóðveginn um 1klst eftir að gos byrjar skr. viðvörum við veginn). Ímyndið ykkur ástandið uppi á jöklinum sjálfum.
2. Katla er undir Mýrdalsjökli hvar hundruðir jeppa geysa nú um daglega.
3. Eldgos gera stundum lítið eða engin boð á undan sér (sbr. nýjasta sprungan á Fimmvörðuhálsi).
Rýmdu gossvæðið vegna óveðurs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.4.2010 | 12:56
Glórulaus ákvörðun
Katla er hættulegasta eldfjall landsins. Við vitum lítið um hvernig gosstöðvarnar á þessu svæði hegða sér. Og gosið er farið að koma okkur á óvart.
Að opna fyrir umferð um þetta svæði er glórulaust.
Gosslóðirnar opnaðar aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.11.2009 | 14:06
Frábært framtak
Dæmi um frumleika, jákvæðni og samstarf við aðrar þjóðir. Allt atriði sem vantar annars staðar til að við náum okkur upp úr kreppunni.
Hattur minn af til þeirra sem skipulögðu þetta framtak.
Íslendingar vekja athygli á Kanarí | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.11.2009 | 10:51
Ótrúlegt bull
Fjármálafyrirtæki leita að pókerspilurum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Sigmar Þormar
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar