Vara versluð eða vara keypt?

Það er ódýrt fyrir útlendinga að versla á Íslandi og því kaupa þeir sér föt.

Ætli íslensku hnigni í kjölfar ESB aðildar?

 


mbl.is Segir verðlag nú eðlilegt á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur tjáir sig ekki....

.... um samtalið við utanríkisráðherra Hollands (frétt RÚV í morgun) . Ótrúlegt hve stjórnvöld eru ákveðin að tjá sig ekki um margt er varðar Icesave og aðildarumsókn að ESB. Í þessu umhverfi er okkur almennum borgurum ætlað að meta kannski stærstu ákvarðanir Íslandssögunnar; gríðarlega skuldir sem okkur er ætlað að greiða (Icesave) og framsal fullveldis Íslands til ESB.

Þessu verður að linna. Taka verður upp ný vinnubrögð. Upplýsingarmiðlun á að vera greiða sem fyrsta skref í vitlegri íslenskri stjórnsýslu á örlagtímum.


mbl.is Ræðir við Bildt um ESB umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðið reyndist okkur vel og við þurfum að hafa það áfram.

Alveg merkilegt hve eftirfarandi röksemd ESB sinna er mikið notuð; Við verðum að láta ESB bjarga okkur Íslendingum frá sjálfum okkur. Þetta reyndum við hér í gamla daga. Með Gamla sáttmála 1262. Nú skulum við muna söguna. Rifja upp barnaskólaefnið: 

1262 var hver höndin uppi á móti annari hér á landi. Sturlungaöld. Noregskonungur átti að bjarga okkur frá sjálfum okkur; Láta sex skip sigla til landsins á hverju ári því við réðum ekki við kaupskap sjálf. Loforð konungs af þessu tagi voru svikin. Mörg árin komu engin skip til landsins. Tók okkur síðan 700 hroðaleg ár að ná sjálfstæði frá herraþjóð.

Með fullveldilð í hönd hefur okkur farnast frábærlega. Ótrúlegur uppgangur á öllum sviðum á síðustu öld.

ESB aðild fylgir of mikið fullveldisafsal. Lokað verður á svokallaða Leifslínu; sjálfstæð samskipti vestur um haf. Að fá sjávarútvegsstefnu ESB yfir sig verður hræðilegt osfrv.


Ég vil sjá mynd af hjólinu!

Dapurleg frétt. En eitt vantar kæra Moggafólk. Mynd af hjólinu svo við getum svipast um eftir því.
mbl.is Hjólið komið til Tortóla?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sættum okkur við þetta

Ætli við verðum bara ekki að treysta ríkisstjórninni til að ganga frá þessu.

Við kusum nýja ríkisstjórn upp úr Búsáhaldabyltingu og eftir setu líklega verstu ríkisstjórnar íslandssögunnar (D/F og D/S) sem réðu ekki við að standa á móti þessu útrásarfjármálarugli.

Æ það er einhvern vegin bara kjánalega að ætla að hefja núna æsing við hverja aðgerð ríkisstjórnarinnar þegar þau reyna að greiða úr þessum málum.


mbl.is Margir skrá sig gegn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vita þau hvað þau eru að gera?

Einhver sagði um útrásarvíkingana í miðju góðærinu að vonandi vissu þeir hvað þeir væru að gera.

Jæja niðurstaðan varð víst sú að þeir vissu það ekki. Fjármáladrengirnir vissu ekkert hvað þeir voru að gera.

Sama vil ég nú segja um okkar ágætu ríkisstjórn. Vonadi vita þeir hvað þeir eru að gera í Icesave deilunni. Það ríkir svo mikil leynd og upplýsingaleysi að við almenningur getum varla metið stöðuna.

Talað er t.d. um að aflétta frystingu á eignum Landsbankans. En hvað með eignir Kaupþings? Voru þær ekki frystar með hryðjuverkalögunum Var sleppt að semja um það??? osfrv.


mbl.is Verðmæti eigna lykilatriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er fjársvipamál?

Ekki veit ég það og eins gott að Mogginn hafi fjármál á hreinu á þessum síðustu og verstu.
mbl.is Ekki slys heldur sjálfsvíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþjóðasjóðurinn ekkert miðað við ESB

Ef ykkur finnst krakkar Alþjóðagjadeyrissjóðurinn afskiptasamur um innri mál Ísland bíðið bara þangað til búið er að pússa okkur inn í Evrópusambandið.

ESB mun skipta sér af miklu fleiri.  Nú þegar er okkur gert að kaupa húsarafmagn á samkeppnismarkaði orkuveitna (vegna EES samningsins). Algert bull og enginn veit af þessu.

Bráðnauðsynlegt er að ná vöxtum niður. Lágir vexti þýða öflugra atvinnulíf. En alþjóðastofnanir sem langt eru í burtu skilja ekki íslenskar aðstæður.


mbl.is Sitjum ekki undir tilskipunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítnir náungar (Odd fellows)

Þessir menn eru ansi sérstakir í háttum, það sem á ensku er kallað Odd fellows.
mbl.is Ísbjörninn blekking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá þér Þór en mátti þetta ekki koma fyrr?

Það er nú einmitt þetta sem vantaði Þór í góðærisæðinu. Gagnrýna yfirvegaða umræðu.

Of lítið var um svona meðan útrásin stóð yfir. Það var eins og Samtök atvinnulífsins hefðu ekki burði í neitt annað en sjálfshól. Því miður. Þín samtök voru undir þetta sama seld.

 Helst kom beitt umræða frá Ragnari Önundarsyni bankamanni.

Semsagt Þór. Ég vil fá svona ræður frá þér hvort sem er góðæri eða hallæri.

kveðja

Sigmar Þormar

 


mbl.is „Margir blinduðust af sjálfshólinu"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigmar Þormar

Höfundur

Sigmar Þormar
Sigmar Þormar

Höfundur er kennari og ráðgjafi.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband